25nóvember

rigning!!!

hér er búin að vera rigning í heila viku!!! hlýtur að vera einhvert season fyrir það eða eitthvað... og með sona dögum þá nennir mar yfirleitt ekki að gera neitt sem felur í sér að fara út úr húsi! þið þekkið þetta...

ég náði mér í nett veikindi síðasta föstudag... hélt í fyrstu að þetta væri bara þynnka en annað kom á daginn... er búin að vera slöpp alla vikuna og varð svo loksins alvöru veik á mið og fim! var ekki par ánægð með það því það þýddi að ég þurfti að re-schedula deiti sem ég átti með ástralanum mínum á fim :) er að fara í kvöld...

meðfylgjandi veikindum er innivera og ég er satt best að segja að verða nett geðveik á þessu! strákarnir eru líka búnir að vera miiikið heima vegna veðurs og nú er svo komið að ég hlakka til að losna við þá! ekki svo að skilja að þeir séu leiðinlegir eða eitthvað... en ég er bara komin með uppí kok af að búa með svona mikið af fólki! kommúnugenið mitt er að hverfa...

ofan á vont veður og mikla inniveru með liðið hangandi yfir sér er svo mamma og systir peters í heimsókn... þannig að það er ekki nóg að mar sé vel veikindamyglaður með gæjunum þá er mar það líka fyrir framan fólk sem mar þekkir ekkert! og það er nú aldrei gaman... inniveran er að hluta til að láta sér batna en einnig að fela sig fyrir öðru fólki...

en eins og í síðustu færslu segir þá er brjálað að gera svo ég varð veik á versta tíma... hittum prófessorinn á mið til að sýna honum hvað væri komið og þá náttlega skellti hann á okkur enn einu verkefninu! eftir eina viku þarf ég að flytja fyrirlestur á ráðstefnu allra helstu arkitekta hér í Jiangsu province... fyrirlestur um sögu arkitektúr á Íslandi... sem BTW spannar ekki nema um 100-150 ár og það verður bókað mál erfitt að tala um þetta í 15 mín... og ofan á það, þá er ég náttlega ekki með neitt efni með mér um þetta subject og ekki svo mikið að finna á netinu!!!

en pabbi kemur náttlega alltaf til bjargar :) hringdi í hann og hann fór beinustu leið að kaupa þær bækur sem eru til um þetta heima og sendi mér! vona bara að þær komi hingað fyrir ráðstefnuna... hehe

en verð öll svaka glöð bráðum :) ekki nema vika og 2 dagar í sveiguna! shit hvað það verður frábært að hafa stelpu í umhverfinu!!!

...var að bæta inn myndum...
25. nóvember 2006 klukkan 13:58
Embla Kristjánsdóttir
7 athugasemdir
20nóvember

commentkerfiđ

er að velta því fyrir mér hvort commenta kerfið virki ekki á síðunni minni??? hmmm... er eitthvað ekki alveg nógu sátt við skortinn á kveðjum eða þvíumlíku hér á síðunni... einkum vegna þess að kína er jú búið að loka á blogspot.com og ég get því ekki fylgst með næstum neinum öðrum... sem mig langar heilmikið :) sérstaklega myndi ég þiggja fréttir af jóladinner með vesturbæjargenginu...

annars allt fínt að frétta hér og svo sem við það sama... brjálað að gera í nýja verkefninu og fullt að gera í skemmtilegri afþreygingu :) erum búin að vera svaka dugleg að fara í golf, borðtennis og fleira skemmtilegt :) ég líka búin að vera sona svakalega dugleg í ræktinni með öllu hinu :) er með eindæmum stolt af sjálfri mér... sérstaklega í ljósi þess að ég hef varla lyft litlla fingri þegar kemur að hreyfingu síðustu ár... vona bara að ég haldi þessu áfram þegar ég kem heim :) engann þrýsting samt...

whiskyið í færslunni hér á undan er síðan víst ekkert whisky... það er "næstum eins og" whisky og er náttlega kínverkst!  það er svo sem allt í lagi á bragðið en meira þannig að það er eingöngu hægt að drekka eins og 2 staup og bjór með... þá er ég að miða við manneskju eins og mig :) þið hin reiknið út fyrir ykkur sjálf... nú eða bara bíða eftir að ég komi heim með gersemarnar :) ætla að reyna að smygla eins og smotteríi heim... :)

gleðifréttirnar hjá mér þessa daga eru að ég er komin með húsnæði í köben í febrúar og mars!!! fékk þessar fréttir síðasta föstudag og hellti svoleiðis í mig til að fagna, meira að segja whiskyi :) og þynnka daginn eftir með því auðvitað... ég fékk herbergi á Rigshospitalets kollegium í framleigu... á sama gangi og Hrefna systir :) og það besta er... ekki nema um 5 min frá skólanum!  það versta er kannski að nú hef ég enga afsökun fyrir að mæta of seint... hmmmm...

vikan byrjaði svo með símtali snemma í morgun þar sem við vorum boðuð í myndatöku... júbb... við erum orðin "topmodel" hehe... vorum plötuð í myndatöku hjá YOHO! magazine sem er víst gefið út í 300þús eintökum í Kína... þetta var að sjálfsögðu mjög á kínverska mátann... allt frekar óundirbúið og allt voða "jájá" eitthvað... meirihlutinn af deginum fór í að bíða og svo kannski ca. 10 min í myndatökur... og ekki einu sinni make-up!!! what is that??? ég var satt að segja ekki par ánægð með það þar sem ég er frekar litmynda fælin og mjööög illa sofin :/  var alls ekki uppá mitt besta en svo kom hugsunin sem einkennir dvölina... "what the heck"... á hvort eð er aldrei eftir að hitta neitt af þessu liði aftur :) svo ég lét vaða og myndirnar eru svo sem allt í lagi... hefðu getað verið betri þó :)  en skemmtileg reynsla situr eftir og það er það eina sem skiptir máli :) hehe...

framundan er vinnavinnavinnavinnavinna... og vonandi skemmtun í endann á þeirri törn :) en það er stutt í sveiguna og þá verður sko tjúttað á stelpumátann!!!
20. nóvember 2006 klukkan 22:00
Embla Kristjánsdóttir
5 athugasemdir
13nóvember

whisky

er að hlusta á Vetrarljóð með Ragnheiði Gröndal og það kemur upp jólatilhlökkun... þessi diskur var í endalausri spilun hjá okkur systrum jólin sem hann kom út :) er samt mjööög glöð að sleppa við jólaundirbúninginn í öllum búðum og þannig... því það eru náttlega ekki haldin jól hér í kína nema hugsanlega á einstaka heimilum... þannig ég mæti gríðarfersk og ekki orðin leið á jólalögum þegar ég kem heim :)

síðasta vika var heldur meira buisy heldur en sú á undan... fullt að gera í skólanum... styttist líka í að dvölinni hérna ljúki! þarf að klára helling áður en hún sveigan mín kemur til mín og við leggjum í ferðalag um kína :)

á fimmtudag fór ég til Hangzhou til að hitta menn að máli... skellti mér á business fund sem fór gríðarvel en ég læt smáatriði fylgja seinna þegar allt er komið í höfn :) en ég er gríðarspennt yfir þessu öllu saman og líkur á að ég endi í viðskiptum við þetta fyrirtæki :)

á föstudag þurfti ég svo að fara heim aftur því við áttum að fara í "field trip" með prófessornum okkar á laugardagsmorgun... þetta er ekkert lítið ferðalag fram og til baka á 2 dögum því það tekur 6 tíma með hraðlestinni að komast milli Hangzhou og Nanjing... var því nett búin á því þegar ég kom heim... það stoppaði mig þó ekki í því að fara og hitta Valerie að eta og drekka eins og nokkra öllara :) fórum síðan að sjálfsögðu á Scarlet að hitta liðið en ég var ótrúlega þæg og fór heim kl 3... varð náttlega að vera hress fyrir "field trip" daginn eftir...

lögðum í hann um 2 leytið á laugardeginum til borgar sem ég man ekki hvað heitir... veit bara að hún er norður af Nanjing og það tekur um 5 klst að keyra þangað... hvað við vorum að fara að gera þarna vorum við ekki alveg viss um... vissum bara að við áttum að skoða einhverja götu í þorpi fyrir utan borgina sem á að endurhanna...

nema hvað... mættum beint í kvöldmat í boði bæjaryfirvalda, að sjálfsögðu :) þegar mar er sona frægur og hittir kínverska stjórnmálamenn þá vilja þeir skála alveg heilan helling í hrísgrjónavíni... (40-70% sterkt)... sem mér finnst ekkert sérstaklega gott... en mar getur náttlega ekki verið dónlegur og sagt nei... það má helst ekki :) ég er reyndar orðin snillingur að afþakka þetta en strákarnir eru því miður ekki eins góðir :) verð að taka það fram að það er ekki verið að skála og drekka einn sopa... neineinei...  mar fær litla könnu fulla af víni og svo er sagt "gambai" sem þýðir að drekka í botn... svo er þjónustan alltaf tilbúin með meira og fyllir könnuna aftur og sagan endurtekur sig... ef mar hefur náð að drekka í botn einu sinni þá halda allir að mar sé svaka góður í þessu og geti léttilega tekið aðra könnu eins og ekkert sé... og því lendir alltaf einhver einn í því að drekka meir en aðrir því það er alltaf verið að skála við hann!!! hehe... af okkur er það yfirleitt Michael :) á laugardaginn var það þannig og hann endaði á sneplunum!!! reyndar hinir líka en ekki eins svakalegir :) ég drakk mjög lítið... sagði bara nei, en þá var ég "neydd" til að "gambai" í rauðvíni! mæli ekki með því... var nett í glasi en ekkert svo svaðalegt :) Michael plataði svo alla á KTV (karioke) að drekka meira :) klukkan var náttlega ekki nema 8 þegar við vorum búin að borða :) enduðum í söng og smá bjórdrykkju til um 10 og svo var haldið heim á hótel... vakna kl 7 daginn eftir og vinna!

á sunnudeginum fórum við svo að skoða þessa götu og aðrar 2 í þorpinu... þá komumst við líka að því að okkar hlutverk í þessu öllu saman er að hanna húsin í götunni uppá nýtt en halda í gamlan kínverskan arkitektúr... það á í rauninni að reyna að gera götuna sem upprunalegasta... engin smá vinna sem á að vera búin á 2 vikum!!! kínverjar eru svo geðveikir með allt sona... finnst lítið mál að klára 50 hús og alla útlitshönnun á 2 vikum... geðveiki... verðum að vinna 24/7 næstu vikur!!! samt gaman því nöfnin okkar verða líklegast grafin í messing plötu og sett á húsin :) verðum ennþá frægari í kína!!! hehehe...

bæjarstjórinn bauð okkur svo að sjálfsögðu í hádegismat og þar var að mestu fiskur á borðum... því þetta hérað er víst frægt (famous) fyrir hreint vatn og því fiskurinn sérlega góður... svo var líka boðið uppá WHISKY... eitthvert whisky sem héraðið er líka frægt fyrir... þetta er ágætis whisky en það var það sama í hádegismatnum eins og kvöldmatnum daginn áður... SKÁLA!!! vorum skálandi og "gambai" allan matinn í whisky og enduðum vel í því :) hehe... ferðin heim var ótrúlega fyndin því þar var söngur og allir fullir! hehe... en það besta var samt að bæjarstjórinn sendi okkur heim með 6 kassa af þessu whisky... fengum sum sé 1 kassa á mann sem í er 6 flöskur! veit ekki hvernig í ósköpunum við eigum að drekka þetta áður en við förum heim! hver veit svo nema við fáum meira eftir 2 vikur þegar við förum aftur að halda kynningu á hönnunni???

svona eru kínverjar gestrisnir :) ekkert nema snilld að vera alltaf í mat hjá bæjaryfirvöldum mismunandi þorpa :) nóg af víni og endalaust nóg af mat!!! hehe... meira sem mar er í góðu yfirlæti hérna stundum :) kannski eins fallegt miðað við vinnuna sem mar þarf að framkvæma! :)
13. nóvember 2006 klukkan 19:01
Embla Kristjánsdóttir
Engin athugasemd
07nóvember

örtröđ

síðasta vika hefur verið með eindæmum heimkær hjá ábúendum... 2 meðlimir lögðust í flensu, einn "on the road" með sin kæreste og við hin lögðumst í leti með sjúklingunum... og það var sko ekkert lítil leti... ég held án gríns að við höfum ekki gert neitt af viti síðan á þriðjudag í síðustu viku þegar við skelltum okkur í steik og á halloween djamm! ég braut að vísu aðeins upp mynstrið og fór í ræktina á fim og hitti Val á barnum í einn öllara... ég braut að vísu aftur munstrið á fös þegar ég fór á deit með ástrala fyrrpart kvöldsins og endaði síðan á svaka djammi með Val og co. restina af kvöldinu...

af deitinu er lítið að segja... þetta er ágætis gaur, gaman að tala við hann en engin framtíð :)

en svo ég komi aftur að letinni þá held ég að ræturnar megi rekja beint til menningar í kína... ég held nebblega að allir séu orðnir soldið þreyttir á kína... ekki svo að skilja að það hafi lagst heimþrárveiki yfir heimilið heldur meira að mar hafi þurft smá frí... það er nebblega þannig að hér er svakalega mikið af fólki í samfélagi sem hamast við að þróast í átt til vesturlandanna... uppgangurinn hérna er með ólíkindum og örtröðin fylgir:  það er verið að rífa niður byggingar og henda upp nýjum í hverju einasta hverfi, orðið "famous" er gríðarvinsælt og þýðir í raun "e-r með nafn" og enginn þreytist á að nota það, starfsfólk veitingastaða segir "good morning" við hvern einasta viðskiptavin-dags og morgna og margir æfa sig sífellt á enskunni og finnst rosa cool að segja "hello" við hvern einasta útlending sem sést á færi... en þrátt fyrir þessar framfarir þá fylgja samskipti fólks ekki alveg með... það er ennþá í hæsta máta mjög óeðlilegt að vera á lausu um 25 ára aldurinn og hvað þá ef mar hefur verið í sambandi áður... held það þekkist bara ekki... hér ertu búinn að ná þér í framtíðarmaka mjög snemma og það er talað um að þú giftist ekki aðeins maka þínum heldur allri fjölskyldu hans... margir eru ennþá í "búa með tengdó" forminu... hér þykir heldur ekki tilhýðilegt að tjá ást sína á almannafæri, svo sem kyssast...

en að örtröðinni... það er með ólíkindum hvað kínverjar eru sáttir við "caosið" sem ríkir hérna... það er svo sem ekki óeðlilegt að þetta gerist þar sem eru svona margt fólk... en djíses krist... stundum er mér alveg nóg boðið og get ekki meir! hér þykir það mjög eðililegt að ýta aðeins, ryðjast í röð (yfirleitt fólk með færri vörur en sá sem á undan er), toga í mann til að betla, keyra yfir tærnar á manni og þar fram eftir götunum... kínverjar eru líka með eindæmum hávært fólk að mínu mati sem heyrist best í umferðinni... umferðin er að hluta til skipulögð... það eru umferðaljós og á stærstu götunum eru hjólastígar... þeir stígar eru nú ekki alltaf virtir og margir keyra þá til að komast framúr röðinni, sömuleiðis eru margir á hjólum sem keyra á akreinum fyrir bíla... nú svo má ekki gleyma gangandi fólkinu :) það er ekkert sjálfgefið að mar gangi á gangstéttinni... mar gengur þar sem mar vill :) ég er t.d. fyrir löngu hætt að kippa mér upp við bjölluhljóm eða bílflautu ef ég geng á hjólastígnum (gerst yfirleitt ekki nema nausyn beri til)... hér liggja flestir á flautunni á meðan akstri stendur, hvort sem um er að ræða bíl, scooter eða hjól... oft er það í góðum tilgangi: svona "hér kem ég" - láta vita svo enginn fari í veg fyrir ökutækið en svo eru ótrúlega margir sem liggja á flautunni í von um að komast hraðar eða taka framúr... mér þykir undarlegt að viðkomandi geri sér ekki grein fyrir því að með götu fulla af bílum eða gangandi fólki þá þýðir ekkert að flauta.... á svoleiðis tímum kemst mar ekkert hraðar fyrir vikið :)

en eins og sagði áðan... þá eru kínverjar sáttir við þetta og taka fullan þátt í þessu daglega :) sem og við sem búum hér :) gerum eins og við getum til að samlagast kínverska samfélaginu en það er hins vegar oft erfitt því við upplifum okkur oftast sem "frægt fólk"... allavega eru viðtökurnar oft þannig og kannski einmitt þess vegna erum við orðin pínu þreytt á þessari "caos"... ef við værum eins og allir hinir þá gætum við kannski auðveldar sætt okkur við og fílað í tætlur þessa örtröð :)  (sem við gerum yfirleitt!)
07. nóvember 2006 klukkan 17:39
Embla Kristjánsdóttir
4 athugasemdir
03nóvember

parte...

hér hefur hellingur átt sér stað uppá síðkastið en þó ekki margt óvenjulegt miðað við aðra daga... erum komin langt eftir á í öðrum kúrsinum okkar, fórum í "field trip" í síðustu viku, erum búin að vera duglega að mæta ekki í skólann og sömuleiðis extra dugleg á djamminu...

héldum innflutningspartý um daginn sem var svaka snilld... þar mættu fjöldi fólks sem við höfum kynnst síðan við komum og Peter hélt uppi stuðinu fyrir mannskapinn :) hann endaði á litlu nærbuxunum sínum, með uppblásna vængi á bakinu og ljótan kínverskan hatt á höfðinu, dansandi eins og honum einum er lagið... það er hægt að sjá myndir af þessu performance á "myndir frá kína"...

ég held við höfum verið svona dugleg á djamminu því við söknum Simonar... hann er á ferðalagi um kína með kærustunni sinni en kemur heim e ca. viku... það er samt búið að vera svaka gaman hjá okkur og þessi djömm sem hafa verið tekin hafa verið með eindæmum skemmtileg :) þó svo sögur fari af "stalker" eftir eitt þessara djamma.... kem betur að því síðar :)

annars er hér ágætis dæmi um hvað kínverjar eru oft rólegir í tíðinni... fór að borða á kaffihúsinu mínu sem selur meðal annars þetta góða Cappucino... fékk mér eggjasamloku með góða kaffinu og sat og ræddi við Ole um daginn og veginn (meira sona hvað við hefðum gert á síðasta djammi sem ég mundi ekki eftir!).... anyways... sé ég ekki hvar þessi risa rotta hleypur niður, eða klifrar niður, steinsteyptu súluna inni á staðnum! ég hélt fyrst að ég hefði séð villusýnir en nei, þjónustustúlkan sá þetta greinilega líka... ég hló bara, fannst fáránlegt að þetta gæti gerst inni á sona fínum stað og hélt að sjálfsögðu að stúlkan myndi gera eitthvað í málinu.... þegar ég svo sá að hún flissaði bara og horfði í kringum sig til að athuga hvort aðrir en ég hefðu séð þetta þá dró ég lappirnar upp í sætið... ég hélt auðvitað áfram að fylgjast með henni og sá að hún lét vita af þessari uppákomu en enginn gerði neitt!!! lífið heldur greinilega áfram sinn vanagang þrátt fyrir eins og eina rottu hlaupandi um á gólfinu... kannski fæ ég hana í næstu "club" samloku???

03. nóvember 2006 klukkan 08:45
Embla Kristjánsdóttir
7 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur