komin fćrsla!!!
veit ég lofaði færlu fyrir löngu síðan...anyways... hún er komin á
www.emblapunky.blogspot.com
MÖST AÐ TÉKKITÁT!!! verð svo framvegis á blogspot....
Staddar á staðnum sem markaði upphaf ferðalags okkar vinkvenna um Kína fyrir tæpum 3 vikum -Shanghai.
Frá því seinast var bloggað höfum við málað menningarmiðstöðina Xian og höfuðborgina Beijing rauða (Mao heitinn sennilega ekki alls kostar ósáttur við það).
Á þessum tveimur stöðum fannst okkur stöllum fullkallt. Á tímabili var Sigurveig satt að segja fullviss um að önnur augnhvítan á henni hefði frosið (og þar sem hún er nú hjúkrunarfræðingur vissi hún að það gat verið mjöög hættulegt).
Í Xian fannst okkur maturinn bestur af öllum þeim stöðum sem við heimsóttum. Hins vegar komumst við að því að þar var fólkið talsvert ljótara en annars staðar í Kína. Hostelstjórinn okkar í Xian heitir Jim Beam, alveg eins og viskýið, og var hress. Herbergið okkar þar angaði hins vegar af klóaklykt, sem var ekki eins hressandi. Embla var nokkuð ósátt við borgina þar sem hún fékk hvergi að kaupa Marlboro lights sígarettur þar, þrátt fyrir að tóbaks-búðar-borðin þar svignuðu undan slíkum kartonum. Þess í stað var hún pínd til að kaupa innlendar ógeðis-sígarettur. Af hverju fengum við aldrei að vita...
Í Beijing heimsóttum við Kínamúrinn og fannst magnaður. Við heimsóttum líka Forboðnu Borgina og fannst ekkert spes. Endurnýjuð frá helvíti. Ekki segja Kínverjum þetta kæru lesendur, þá verðum við hýddar.
Í Xian borðuðum við hund. Hann var fínn. Í Beijing borðuðum við skjaldböku og grænna-bauna-ís. Skjaldbakan var góð, ísinn viðbjóður. Verst fannst okkur að þurfa að velja þá lifandi skjaldböku sem myndi mæta örlögum sínum.
Í Shanghai höfum við ekki enn gert neitt merkilegt. Komum hingað í frekar slöku ásigkomulagi með morgunflugi eftir misheppnaða tilraun kvöldið áður til að snæða Pekingönd (í Peking, það var point-ið) og eiga hátíðlega stund. Okkur tókst vel að snæða öndina. Kvöldið varð hins vegar eiginlega meira marinerað en hátíðlegt þar sem við fundum hvítvín í fyrsta skipti í ferðinni...og við fundum alltaf nýja...og nýja...og nýja...flösku. Magnað að við höfum fundið hostelið seinna um kvöldið -og flugvöllinn nokkrum klukkutímum eftir það.
Þetta er í heild búið að vera sérdeilis prýðilegt ferðalag sem hefur alið af sér ýmsa þekkingu. Vissuð þið að í Kína er bannað að skrifa á póstkort með rauðu? Ýmislegt er þó enn að valda okkur heilabrotum. T.d. höfum við ekki enn skilið hvað “the plum of the vegetable buttons up the meat” þýðir, en ef e-ð er að marka matseðla landsins er þetta ansi vinsæll réttur.
Setningar ferðarinnar eru þó án efa:
-“Hey, ég fann kók/vatn/jógúrt sem er EKKI útrunni-ð/n!” (án gríns, hátíð þegar slíkt gerist)
-“Hey, það fæst KAFFI hérna!” (enn og aftur hátíð)
-“HELVÍTIS KÍNVERJAR!” (fyrir allt sitt óskiljanlega skrifræði og skrýtnu reglur sem við skiljum ekki)
...og núna seinustu dagana... “FOKK, við erum með ALLT OF MIKINN farangur! Við verðum SVOOO með yfirvigt!”
Á morgun er ætlunin að nýta vel seinasta daginn í Kínalandi.
Að því sögðu segjum við bara -hlökkum til að sjá ykkur!
F.h. ferðalanga,
Sigurveig